Skilmálar

Upplýsingar um seljanda 

Vefverslunin Barnamarkadurinn.is er rekin af Barnamarkaðurinn ehf.
Kt. 4910230230
Vsknr. 151252

Netfang: Barnamarkadurinn@gmail.com

Sími: 7882042

Barnamarkaðurinn ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Verð á vörum

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.


Afhending

Hægt er að fá pantanir sendar með Dropp um allt land, sjá afgreiðslustaði.
Allar pantanir eru afgreiddar á 0-5 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram.
Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun.
Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda eftirfarandi 
skilmálar

Sendingarkostnaður er eftirfarandi:

Dropp á höfuðborgarsvæðinu frá 990 kr.

Heimsending á höfuðborgarsvæðinu frá 1550 kr.

Dropp utan höfuðborgarsvæðisins frá 1190 kr.

Heimsending á suð-vestur horninu frá 1550 kr.

Samskip utan höfuðborgarsvæðisins frá 1550 kr.

 

Vöruskil

Vörur sem eru pantaðar í vefverslun okkar er hægt að skila innan 14 daga gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta gildir þó ekki um útsöluvörur.
Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.

Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu eða gefin út rafræn inneignarnóta sem hægt er að nota í vefverslun. 

Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið Barnamarkadurinn@gmail.com áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum gegn gjaldi í gegnum vöruskil Dropp hér og er verðið skv. verðskrá Dropp. Gjaldið dregst frá upphæðinni sem viðskiptavinur fær endurgreidda eða í formi inneignarnótu.

Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Persónuvernd

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.